Saloth Sar, betur þekktur sem Pol Pot,
var fæddur 19. maí 1925 og dó 15. apríl 1998. 
Hann var leiðtogi Rauðra byltingarsinna í Suðaustur-Asíu
	frá 1963 til 1979 og er þekktastur fyrir dauða
	óhemjumargs fólks í stjórnartíð sinni, sem var
	frá 1975 til 1979. Þeir reyndu að
	framfylgja sýn sinni um samyrkjuvæðingu, en
meðal þess sem hún átti að fela í sér var að borgarbúar
flyttu út í sveitir og ynnu þar við landbúnað eða í betrunarvinnu.
Þeir töldu sig geta byrjað siðmenninguna upp á nýtt og tóku því upp
tímatal sem átti að hefjast með valdatíð þeirra.

Sú valdatíð var ekki löng, en því mannskæðari.
Þrælkunarvinna, vannæring,
    hrun í heilbrigðiskerfinu og beinar aftökur
    kostuðu á bilinu 750.000 - 1.700.000 manns
    lífið (sumir segja á bilinu 300.000 til 3.000.000)
    -- í landi sem hafði 14 milljónir íbúa árið 2006.
    Meðal þeirra sem voru ofsóttir voru menntamenn og
  aðrir borgaralegir óvinir, sem taldir voru hættulegir
